Vísdómsstundirnar voru settar þriðjudaginn 29. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Vísdómsstundarbarnanna komu og voru viðstödd setninguna. Foreldrum var kynnt vetrarstarf barnanna og sýnd námsgögn. Síðan var fyrsta Vísdómsstund vetrarins. Þetta skólaár verða 11 börn í Vísdómsstundum. Það verður gaman að takast á við  þetta skemmtilega starf eitt skólaárið enn og veita börnunum visku, lærdóm og góðan undirbúning fyrir grunnskólann á þessu síðasta leikskólaári.

Börn eru fróðleiksfús og drekka í sig þekkingu.