Sótt er um dvöl fyrir barn í leikskólanum Vinaminni inni á vala.is.
Vala.is er sameiginlegt umsóknarkerfi fyrir alla leikskóla á landinu.
Við úthlutun lausra plássa er tekið tillit til aldurssamsetningar og systkina.
Reynt er að taka val foreldra til greina. Mikilvægt er að velja leikskólann Vinaminni í fyrsta val þar sem samþykktar eru fyrst umsóknir barna í fyrsta vali, svo öðru vali og koll af kolli.