Leikskólagjöld í Vinaminni
gilda frá 1. apríl 2026
Gjaldskráin miðar við gjaldfrían leikskóla fyrir 36 stundir á viku, eingöngu er greitt fæðisgjald og Vinaminnisgjald ef dvalartími er innan þeirra marka.
Hér að neðan er hægt að sjá helstu dæmi um leikskólagjöld.
Fæðisgjald er 17.584 kr. og Vinaminnisgjald er 3.500 kr. Foreldri greiðir alltaf fæðisgjald og Vinaminnisgjald og því engir afslættir af þeim gjöldum.
Vakin er athygli á að samkvæmt þjónustusamningi Reykjavíkurborgar við sjálfstætt starfandi leikskóla miðast leikskólagjald í sjálfstætt starfandi leikskóla við gjaldskrá leikskóla Reykjavíkur, margfaldað með 1,15 fyrir 18 mánaða börn og eldri og 2,15 fyrir börn í ungbarnaleikskólum og ungbarnadeildum.
Systkinaafsláttur er 100% af námsgjaldi fyrir börn búsett í Reykajvík og 70% fyrir börn búsett í öðru sveitarfélagi en Reykjavík.
Afslættir af námsgjaldi vegna tekjuviðmiða fyrir foreldra búsetta í Reykjavík má sjá á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Afslættir vegna tekjuviðmiða foreldra sem búsettir eru í öðrum sveitarfélögum eru í samræmi við viðmið tilheyrandi sveitarfélaga.
Almennt um leikskólagjöld í Vinaminni
Leikskólinn er opinn milli 7:30 – 16:30 alla virka daga. Dvalartími barna hefst fyrir kl 9:00.
Leikskólagjöld samanstanda af fæðisgjaldi, námsgjaldi og Vinaminnisgjaldi.
Námsgjald er háð dvalartíma barns. Semja þarf um dvalartíma barns við leikskólastjóra hverju sinni og sótt er um breyttan dvalartíma í gegnum Völuna. Breyting þarf að berast fyrir 25. hvers mánaðar til að taka gildi um næstu mánaðarmót. Breyting á dvalartíma miðast við mánaðarmót.
Sótt er um tekjutengda afslætti af námsgjaldi í gegnum umsokn.vala.is eða í samræmi við reglur tilheyrandi sveitarfélags hverju sinni.
Fæðisgjald er fyrir morgunmat, hádegismat og hressingar.
Vinnaminnisgjald er gjald sem er m.a. vegna færri lokana vegna starfsdaga ásamt viðbótarmönnunar á deildum. Ekki er innheimt gjald vegna skráningardaga.
Leikskólagjöld í Vinaminni eru almennt 15% hærri en leikskólagjöld í Reykjavík þar sem framlag Reykjavíkurborgar til sjálfstætt starfandi leikskóla er 15% lægri en til borgarrekinna leikskóla. Leikskólagjöld eru 115% hærri fyrir börn yngri en 18 mánaða vegna sömu ástæðna.
Almennt er horft til þess að afslættir foreldra að leikskólagjöldum fyrir börn búsett í öðru sveitarfélagi en Reykjavík, eru í samræmi lögheimilissveitarfélag þess, þar sem lögheimilissveitarfélag barns veitir niðurgreiðslu vegna skólagöngu þess í leikskóla.
Leikskólagjöld eru innheimt 11 mánuði á ári. Ekki eru innheint leikskólagjöld þann mánuð sem leikskólinn er lokaður vegna sumarleyfa.
Leikskólinn Vinaminni er lokaður á aðfangadag og gamlársdag. Leikskólagjöld lækka ekki vegna þessa.
Leikskólagjöld greiðast fyrirfram og er eindagi 6. hvers mánaðar. Gjaldskrá getur breyst án fyrirvara.
Uppsagnarfrestur á leikskólaplássi er einn mánuður. Gott er að láta vita eins fljótt og unnt er. Uppsögn skal vera skriflega og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar.
Séu leikskólagjöld komin í eins mánaða vanskil þá jafngildir það uppsögn.
