Gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra

Foreldrasamstarf

Rík áhersla er lögð á gott foreldrasamstarf hér í Vinaminni þar sem við teljum það ein mikilvægustu tengsl heimila og skóla og stuðlar að því að barnið upplifi öryggi og vellíðan. Við leggjum okkur því fram við að efla samstarfið og koma til móts við þarfir foreldra eins og mögulegt er.

Foreldrum er boðið í samtal við leikskólastjóra áður en barnið byrjar í aðlögun í leikskólanum þar sem foreldrum er sýndur leikskólinn og kynntir fyrir deildarstjóra og starfsfólki.

Foreldrafundir eru haldnir einu sinni á ári að hausti þar sem vetrarstarf barnanna er kynnt.

Foreldraviðtöl eru einu sinni á ári, á vorönn. Þá er farið yfir hvernig barnið stendur í alhliða þroska. Deildarstjórar sýna foreldrum niðurstöður skimana eins og við á og annarra skráninga og foreldrar koma sínum hugleiðingum á framfæri.

Foreldrar geta ávallt fengið viðtal við deildarstjóra barns síns eða leikskólastjóra þegar þau vilja yfri skólaárið.

Foreldrum er boðið að jafnaði annan hvern föstudag að borða morgunverð með barninu/börnum sínum í leikskólanum. Þetta er gert til að efla foreldrasamstarf í skólanum og fá foreldra inn í skólann í smá stund.

Foreldrar fá reglulega upplýsingar sendar til sín um bæði hvað hefur verið gert og hvað er framundan hjá barninu. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með og hafa samband ef spurningar vakna. Það er mikilvægt að barnið geti tekið þátt þegar það er t.d. búningadagur eða hjólaferð.

Umhverfið

Vinsamlegast akið varlega í næsta nágrenni leikskólans og skiljið bílinn ekki eftir í gangi. Vinsamlegast leggið bílnum við Drafnarfell.

Skiljið hurðir og hlið leikskólans aldrei eftir opið og látið starfsfólk alltaf vita þegar komið er með barnið í leikskólann og þegar það er sótt.

Við leyfum börnunum að njóta nærumhverfisins, náttúrunnar og fleiri leikvalla og förum reglulega út fyrir garðinn og er barnið ávallt haft í gulu vesti.

Slys

Slasist barnið í leikskólanum greiðist komugjald á slysadeild af leikskólanum. Leikskólinn Vinaminni hefur samkvæmt lögum tryggingar er varða skaðabótaskyldu, þannig að öll börn eru tryggð í leiksólanum.

Vistunartími

Vinaminni er opinn frá kl. 7:30 – 16:30.

Við biðjum ykkur að virða umsamdan dvalartíma barns ykkar í leikskólanum. Vilji foreldrar breyta dvalartíma þá þarf að sækja um breytingar á www.umsokn.vala.is með a.m.k. mánaðarfyrirvara.

Leikskólagjöld eru greidd fyrirfram. Nánari upplýsingar er hægt að finna hér.

Að koma og fara

Við leggjum áherslu á að taka vel á móti barninu og láta það finna að það sé velkomið. Í lok dags leggjum við áherlsu á að barnið sé kvatt og þakkað fyrir daginn.

Við óskum eftir því að börnin mæti reglulega og gott væri að börnin væru mætt fyrir klukkan 9:00 áður en skipulagt skólastarf hefst. Það getur verið erfitt fyrir börnin þegar komið er inn í t.d. miðja stöðvavinnu. Skipulagt skólastarf fer að mestu fram milli 9:00 – 12:00.

Veikindi og fjarvera barna

Vinsamlegast tilkynnið forföll fyrir kl 9:00. Hægt er að tilkynna forföll með því að hringja inn á deild, senda póst á vinaminni@vinaminni.is eða skrá beint inn í völuappið.

Fæðuofnæmi

Sé barn með fæðuofnæmi skal framvísa læknisvottorði frá sérfræðingi, þar sem tekið er fram um hvers konar ofnæmi sé að ræða.

Þagnarheit

Vert er að benda á að starfsfólk leikskólans er bundið þagnarheiti. Allar upplýsingar sem gefnar eru um barnið er trúnaðarmál. Þagnarheitið er í gildi þó starfsmaður láti af störfum. Ennfremur bendum við góðfúslega á að foreldrum er ekki heimilt að tala um það sem þeir upplifa eða heyra sjálfir varðandi önnur börn, fjölskyldur þeirra eða starfsfólk þegar þeir koma í leikskólann.