Kæru foreldrar

Börnin ykkar eru þessa dagana á fullu að búa til leyndarmál eins og við köllum það en þau sitja við og búa til jólagjafir handa mömmu og pabba.
Þetta er mikil vinna hjá börnunum ykkar þau vanda sig mjög við verkið og leggja metnað sinn íþað.
Þau brosa blítt þegar við tölum um hvað mamma og pabbi verða glöð þegar þau opna pakkann frá þeim á jólunum.
Þetta er ekki bara vinna við jólagjöfina heldur skreyta þau pappír til að pakka jólagjöfinni inn og þau gera jólakort fyrir ykkur.
Svona gengur lífið í Vinaminni þessa dagana en að sjálfsögðu er leikurinn allsráðandi eins og á að vera í leikskólanum.