Kæru foreldra.

Nú styttist í sumarfríið okkar og ætlum við að eiga saman notalega stund, börn, foreldrar og starfsfólk fyrir fríið.
Föstudaginn 29. júní verður sumarhátíðin í Vinaminni. Börn og starfsfólk ætla að skreyta garðinn með veifum og allskyns skrauti sem börnin útbúa.
kl: 15:00 hefst svo hátíðin. Það verður grillað, börnin syngja, auk þess sem skemmtikraftar koma á vegum foreldrafélagsins.
Kæru foreldra komið og njótið hátíðarinnar með okkur þetta verður bara gaman.

Hlökkum til að sjá ykkur
Börn og starfsfólk Vinaminnis