Kæru foreldrar

Á nýju ári eru tveir elstu barnahóparnir á Töfrasteini að fara í menningarferðir. sjá „viðburðir“. Einnig fara yngri börnin í vettvangsferðir og útikennslu um nánasta umhverfi skólans eftir því sem litlir fætur geta. Fyrir yngstu börnin er nóg að fara út í snjóinn í garðinum og halda jafnvægi þar og kafa snjóinn upp að hnjám.