Kæru foreldrar

Jólaballið okkar verður föstudaginn 15. desember kl: 8:30 til c.a. 10:00 í Danshöllinni í Drafnarfelli.
Foreldrar og börn mæta í Danshöllina kl: 8:30 en þá verður boðið upp á heitt súkkulaði með rjóma, flatkökur með hangikjöti og piparkökur.
Kl: 9:00 dönsum við í kringum jólatréð, jólasveinar koma í heimsókn með glaðning í poka fyrir börnin.
Að því búnu fylgja foreldrar barninu/börnunum sínu yfir í Vinaminni og geta að því búnu haldið til vinnu sinnar.
Jólaballið er í boði foreldrafélagsins og Vinaminnis.