Tíminn líður og vetrarstarfið óðum að klárast. Opið hús verður 3. júní kl 11-13 og vísdómsslit eins og áður hefur verið nefnt 20. maí

Nú hefur verið að bætast við starfsfólkið hjá okkur í Vinaminni. Halldór og Keren eru ný á Töfrasteini. Ragna, Rannveig eru á Dvergasteini og Hófí á Völusteini. Kata ,,okkar“ á Töfrasteini er að mestu á Álfasteini þessa dagana. Svo það eru heilmiklar breytingar í gangi.

Í næstu viku nnt 18. maí fara vísdómsbörn í borgarleikhúsið. Þau þurfa þá að vera mætt kl 9 í leikskólann til að ná strætó. Svo er það auðvitað sveitaferðin og gistingin sem líka er í næstu viku.

Bókaormurinn telur 50 bækur næsta þriðjudag og þá verður pitsaveisla eins og börnunum hefur verið lofað.

Ég set email adressuna mína hér inn ingibjorg.tofrasteinn@gmail.com ef þið hafið einhverjar spurningar til mín en athugið að ég er ekki oft við tölvuna og kíkji aðeins þar inn þegar tími gefst til.