Markmið leikskólans Vinaminnis
taka mið af lögum um leikskóla og grunnþáttum menntunar.
Grunnþættir menntunar, markmið og starfshættir leikskólans fléttast saman í öllu starfi skólans.
- Að börnin fái tækifæri til að taka þátt í merkingarbæru starfi og hafi áhrif á val á viðfangsefnum leikskólastarfsins
- Að veita börnunum læsishvetjandi umhverfi, stuðla að góðu íslensku máli, og styðja við og hjálpa þeim börnum sem standa höllum fæti í íslenskunni.
- Að efla sköpunarhæfileika barnanna, gagnrýna hugsun og að styrkja þau í að finna lausnir
- Að hvetja börnin til sjálfstæðis, sjáfsvitundar og styðja þau í trú á eigin getu og samskipti þeirra einkennist af virðingu og jafnrétti óháð uppruna og margbreytileika.
- Að styrkja andlega, líkamlega og félagslega vellíðan barnanna
- Að styðja við þroska og þarfir barna með fötlun og sérþarfir, inngilding – fullgilding
- Að veita börnunum tækifæri til að kynnast náttúru, umhverfi, menningu og samfélagi
- Að börnin öðlist hamingju og gleði í leikskólastarfinu og þau finni sig hluta af heild
- Að samstarf foreldra og leikskóla sé traust og opið, að foreldrar komi með uppbyggilega gagnrýni á starf leikskólans sem leiðir af sér metnaðarfyllri menntun barnanna svo nám og vellíðan þeirra verði meira
og betra.
Ávallt skal hafa það í huga að börnin eru litlir einstaklingar sem eru að þroskast og dafna. Allt sem þau hafast að í leikskólanum, viðmót og samskipti eflir þau í hinum alhliða þroska og mótar þau til framtíðar. Sú þekking og færni sem þau öðlast á leikskólaárunum örvar þau til dáða í þekkingarleit sinni. Því er mikilvægt að börnin fái að þroskast á eigin forsendum. Jákvæð samskipti eru forsenda virðingar og jafnréttis. Sjálfstæði og félagsfærni veitir börnunum vellíðan og hamingju sem hvetur þau áfram og þau skynja merkingu viðfangsefnanna.
