Svona líður dagurinn í Vinaminni – léttur, lifandi og lærdómsríkur

Lögð er mjög mikil áhersla á að taka vel á móti hverju barni svo það finni sig velkomið og mikilvægt í leikskólanum. Börnin þurfa að upplifa öryggi og það viðmót sem þau mæta getur haft úrslitaþýðingu varðandi góð samskipti og tengsl.

 

Námssvið og námsþættir fléttast inn í daglegt líf og leiki barnanna. Borðhald, hvíld, hreinlæti, klæða sig úr og í, eru mikilvægir þættir í námi barnanna.

Börnin hjálpa sér sjálf

eftir því sem þroski þeirra og geta leyfa,

það eykur sjálfstæði þeirra og styrk.

Líkamleg umönnun og heilsuvernd stuðlar að almennri vellíðan barnanna.

Dagskipulag leikskólans og ákveðnar tímasetningar, sem þó eru sveigjanlegar, gefur starfinu ákveðna festu.

Dagskipulagið er sniðið að þörfum barnanna, þroska þeirra og aldri og veitir hverju barni öryggi.

Í leikskólanum byrjum við daginn á rólegri og notalegri morgunstund þar sem börnin fá hollan og góðan morgunmat.

 

Þegar allir eru orðnir saddir hefst dagsskipulagið og faglegt skólastarf tekur við

 

 

Fyrir hádegi bjóðum við upp á litríka og hressandi ávaxtastund, og í hverri viku fer fram markviss og fjölbreytt málörvun sem styður við orðaforða, tjáningu og samskiptafærni barnanna. Útivera er líka stór og mikilvægur hluti af deginum – þar fá börnin að kanna umhverfið, hreyfa sig og njóta leikja úti við.

Um hádegisbil borða börnin hollan og ferskan hádegismat sem veitir þeim orku fyrir restina af deginum. Að máltíð lokinni fara yngstu börnin í hvíld þar sem þau fá tíma til að slaka á og endurnærast.

Í kjölfarið eru samverustundir þar sem við leggjum sérstaka áherslu á söng, lestur og hlýlega samveru. Það er mikið lesið hjá okkur, bæði í litlum hópum og öllum saman, og við sjáum hversu mikla gleði og ró það færir börnunum að hlusta á sögur og taka þátt í lifandi frásögnum.

Þó að megináherslan á faglegt starf sé fyrir hádegi heldur skapandi og fjölbreytt starf áfram síðdegis, þar sem líflegur leikur og samveran fá að flæða áfram á sínum hraða þar sem leikurinn er aðalnámsleið barnanna.