Hugmyndafræði og uppeldisstefna leikskólans sem höfð er til hliðsjónar í starfi skólans byggist á kenningum Urie Bronfenbrenner um áhrif umhverfis á námsgetu barna, Berit Bae um þróun sjálfsins og Piaget um hvernig börn tileinka sér þekkingu.
Berit Bae – þróun sjálfsins
Berit Bae leggur áherslu á mikilvægi virðingar, hlustunar og lýðræðislegra samskipta í samskiptum fullorðinna og barna. Hún telur að börn eru hæfir einstaklingar frá upphafi lífs og að þau þrífist best þegar tekið er mark á sjónarmiðum þeirra, tilfinningum og reynslu. Þegar fullorðnir sýna barninu raunverulegan áhuga og viðurkenningu eflist sjálfstraust þess og öryggi.
Samkvæmt Berit Bae byggist góð uppeldis- og menntunarstörf á jafnræði og tengslamyndun. Hlutverk fullorðinna er ekki að stjórna barninu helur að vera í samræðu við þau, leiðbeina af nærgætni og skapa rými þar sem barni upplifir sig séð og virt. Slík samskipti leggja grunn að félagsfærni, sjálfstrausti og jákvæðum samskiptum barnsins til framtíðar.
Urie Bronfenbrenner – áhrif umhverfis á þroska barna
Urie Bronfenbrenner var sálfræðingur sem lagði áherslu á að börn þroskist ekki ein og sér, heldur í samspili við umhverfið sem þau lifa í. Þroski barnsins mótast ekki aðeins af barningu sjálfu heldur einnig af fjölskyldu, leikskóla, vinum og daglegum samskiptum. Hlýja, öryggi og dagleg tengsl í nánasta umhverfi barnsins skipta því mestu máli fyrir liðan þess, sjálfsmynd og nám.
Hann benti einnig á að samhengi skiptir máli, allt tengist. Samstarf foreldra og skóla, líðan og aðstæður fjölskyldunnar, samfélag og menning hafa öll áhrif á barnið, jafnvel þótt barnið taki ekki beinan þátt í þeim þáttum. Þegar fullorðnir vinna saman, sýna skilning og skapa stöðugt og styðjandi umvherfi, eykur það líkurnar á að barnið dafni og þróist á heilbrigðan hátt.
Jean Piaget – hvernig börn læra
Jean Piaget lagði áherslu á að börn læri og þroskist í gegnum eigin virkni og reynslu. Börn eru ekki passífir móttakendur upplýsinga heldur kanna heiminn, spyrja spurninga og byggja smám saman upp skilning sinn. Þau hugsa á mismunandi hátt eftir aldri og þroska, og þrufa tíma, endurtekningu og tækifæri til að prófa sjálf.
Samkvæmt Piaget læra börn best þegar þau fá að uppgötva og leysa áskoranir á eigin forsendum. Hlutverk fullorðinna er að styðja, hlusta og skapa umhverfi sem hvetur til leiks, umhugsunar og sjálfstæðis fremur en að gefa „rétt svör“ strax. Þegar börn fá að mistakast, reyna aftur og læra af reynslunni styrkist skilningur þeirra og sjálfstraust.
