Saga leikskólans
- Category: Um leikskólann
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 281
Velkomin á heimasíðu leikskólans Vinaminnis.
Leikskólinn Vinaminni er sjálfstæður skóli sem var stofnaður 14. janúar 1994 leikskólastjóri er Sólveig Einarsdóttir og er jafnframt rekstraraðili. Leikskólinn er staðsettur í Asparfelli 10 111 Reykjavík á fyrstu hæðinni í stóru blokkinni. Gengið er inn í leikskólann bak við blokkina.
Í leikskólanum eru 47 börn á aldrinum eins árs til sex ára. Skiptist leikskólinn í þrjár deildar. Á Álfasteini eru eins til tveggja ára gömul börn, á Dvergasteini eru tveggja til þriggja ára gömul börn og á Töfrasteini eru þriggja til sex ára gömul börn. Starfsmannafjöldi er í samræmi við barnafjölda og aldur barnanna á hverri deild.
Leikskólinn er nú að verða 17 ára gamall og því rétt að skríða yfir unglingaárin. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum 17 árum, starfið hefur þróast frá ári til árs og allir leggja sig fram við að hafa andrúmsloftið afslappað og notalegt. Starfsmannabreytingar eru yfirleitt ekki miklar, samt helst ef um ungt fólk er að ræða sem kemur tímabundið í vinnu og fer svo á menntabrautina. Það er alltaf ákveðinn kjarni starfamanna sem er búinn að vera lengi og orðinn rótgróinn í skólanum. Besti efniviðurinn í rekstri leikskóla er að hafa gott starfsfólk sem nýtur þess að vinna með börnunum og stuðlar að því að þau hafi fjölbreyttni í verkefnavali og þeim líði sem allra best í skólanum.
Útileiksvæðið er útbúið leiktækjum frá Barnasmiðjunni og fyrir utan garðinn er stór hóll sem er mjög gaman að fara á, sérstaklega yfir veturinn þegar hægt er að renna sér í snjónum. Þá er líka leikssvæði borgarinnar við hlið leikskólans og notum við það svæði óspart til að fá meiri tilbreytingu í útileikinn.
Leikskólinn er opinn frá kl: 7:30 til kl: 17:00



