Markmið leikskólans
- Category: Um leikskólann
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 200
Markmið leikskólans Vinaminnis taka mið af lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla sem er stefnumótandi leiðarvísir um uppeldisstörf í leikskólum
Leikskólanám á að efla alhliða þroska barna, þ.e.a.s. efla mikilvægustu þroskaþætti sem samtvinnast hjá barninu. Þessir meginþættir og samspil þeirra varða líkamsvöxt barna og hreyfifærni, tilfinningalíf, vitsmuni, félagsvitund og félagshæfni, fegurðarskyn og sköpunarhæfni, siðgæði og lífsviðhorf. Í leikskólastarfi er barnið í brennidepli og starfshættir eiga að taka mið af þroska og þörfum hvers barns. Leikskólanám er samþætt nám þar sem námssvið og námsþættir fléttast inn í daglegt líf og leik barnsins.
Starfsfólk leikskólans Vinaminnis hefur sett sér eftirfarandi markmið til að starfa eftir.
Markmið leikskólans - langtímamarkmið
Yfirmarkmið
- Að búa börnunum þroskavænleg uppeldisskilyrði
- Að efla viðurkennandi samskipti í leikskólanum
- Að efla mál og málskilning barnanna
- Að stuðla að því að gleði sé ríkjandi í leikskólanum
- Að stuðla að vináttu og friði meðal barnanna
Undirmarkmið
Barn - barn:
- Að börnin læri að leika sér saman og taka tillit hvert til annars
- Að börnin læri að leysa deilur
Barn - fullorðinn:
- Að hver einstaklingur sé vðurkenndur eins og hann er
- Að efla sjálfsbjargarviðleitni með börnunum
- Að efla jákvæða sjálfsmynd
- Að stuðla að því að börnin læri söngtexta og sönggleði fái að njóta sín
Leikskólanám er samþætt nám þar sem barnið er að læra allan tímann við mismunandi aðstæður. Leikskólakennarar nota öll tækifæri sem gefast til að örva nám barnanna, t.d. í matartímum, fataherbergi og á snyrtingu. Umönnun og daglegar vejur eru stór hluti af leikskólastarfinu. Umönnun er fólgin í því að annast börnin líkamlega og andlega af hlýju, áhuga og ábyrgðarkennd. Með slíkri umönnun skapast tilfinningatengsl og trúnaðartraust.



