Foreldrafélagið
Í stjórn félagsins eru:
Sigurrós Lílja Grétarsdóttir formaður
Elín Hulda Halldórsdóttir
Guðrún Elva Arinbjarnadóttir
Fríða Hrönn Erlendsdóttir
Dagmar S. Guðmundsdóttir
Magnús Hjaltested
fulltrúi leikskólans er Sólveig s: 5870977
Starfandi er mjög öflugt foreldrafélag í leikskólanum. Það stendur fyrir fræðslufundum fyrir foreldra, gefur út fréttabréfið Vina – minnisblað tvisvar á ári. Í því kemur fram hvað er á döfinni hjá félaginu og hvað er framundan í starfinu í leikskólanum.
Félagið stendur fyrir ýmsum uppákomum fyrir börnin, ýmist inni í leikskólanum eða utan hans. Má þar helst nefna: Ferð í Heiðmörk fyrir jólin, leiksýning í desember í leikskólanum og danskennsla í mars, lögregluheimsókn í febrúar og vorferð í sveitina í maí. Foreldrafélagið og leikskólinn halda síðan sameiginlega sumarhátíð í leikskólanum næstsíðasta dag fyrir sumarfrí.
Markmið foreldrafélagsins eru:
- Að efla samskipti foreldra við skólann
- Að stuðla að fræðslu til foreldra
- Að veita stjórnendum skólans stuðning og aðhald við rekstur hans
- Að efla tengsl barna og foreldra
Fundir foreldrafélagsins
Stjórn foreldrafélagsins heldur fundi reglulega og skipuleggur störf félagsins. Foreldrafélagið stendur fyrir fræðslufundum fyrir foreldra og starfsfólk einu sinni á ári .
Foreldrasamvinna
Góð samvinna foreldra og leikskóla er forsenda fyrir árangursríkri dvöl í leikskólanum og góðri líðan barnsins. Samvinna foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu og opnum samskiptum. Foreldrar eru ávallt velkomnir í leikskólann og taka þátt í starfinu.
Markmið
- Að veita foreldrum upplýsingar um starfsemi leikskólans
- Að veita foreldrum upplýsingar um þroska barnsins og stöðu þess í leikskólanum
- Að afla upplýsinga um aðstæður og uppeldisviðhorf foreldra
- Að stuðla að þátttöku foreldra í starfi leikskólans
- Að rækta samvinnu og samskipti leikskólans og heimilanna
- Að skapa umræðuvettvang fyrir skoðanaskipti um uppeldi barna
Óformleg - dagleg samskipti
Þar sem leikskólinn er lítill gefst auðveldlega kostur á daglegum samskiptum við foreldra. Foreldrar og starfsfólk spjalla saman í skálanum (fataklefa) og þar geta foreldrar fengið vitneskju um hvernig dagurinn gekk hjá barninu. Foreldrar gefa sér tíma til að koma inn á deildarnar þegar þeir koma með eða sækja börnin í leikskólann.
Foreldraviðtöl
Foreldraviðtöl eru tvisvar sinnum á ári og fara fram í nóvember og febrúar. Í nóvember fer fram létt spjall um líðan barnsins í skólanum en í febrúar fá foreldrar nána vitneskju um hvernig barnið stendur í hinum alhliða þroska í leikskólanum. Hvernig líður barninu í barnahópnum, á það einhverja vini, hvernig er málþroskinn, vitsmunaþroskinn, hreyfiþroskinn o.s.frv. Hér fá foreldrar líka að vita hvaða viðfangsefni fangar barnið, hvað það velur á valtímanum, hvort fjölbreytni er í vali barnsins eða velur það oft sömu leiksvæði og sömu viðfangsefni. Auk þessara föstu viðtala geta foreldrar fengið viðtal við leikskólakennara barnsins síns eða leikskólastjóra eftir þörfum, og leikskólakennarar boða foreldra í viðtöl ef þörf er á



