Dagsskipulagið
- Category: Nám í leik
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 282
Dagskipulag leikskólans, sem er þó sveigjanlegt, gefur starfinu ákveðna festu. Dagskipulagið er sniðið að þörfum barnanna, þroska þeirra og aldri og veitir hverju barni öryggi.
07.30 Leikskólinn er opnaður
07.30 - 09.00 Morgunverður
09.00 - 09.35 Leikur á deildum
09.35 - 09.50 Ávaxtastund, samvera
09.50 - 10.00 Alstund
10.00 - 11.30 Val, vísdómsstundir, hópastarf
11.30 - 11.50 Undirbúningur fyrir hádegisverð
11.50 - 12.00 Söngstund
12.00 - 12.30 Hádegisverður
12.30 - 13.00 Samverustund, hvíld
13.00 - 13.35 Leikur á deildum
13.35 - 13.50 Alstund
13.50 - 15.00 Val, vísdómsstundir, hópastarf
15.00 - 15.20 Undirbúningur fyrir síðdegishressingu
15.20 - 15.30 Söngstund
15.30 - 16.00 Síðdegishressing
16.00 - 16.20 Samverustund
16.20 - 17.00 Leikur á deildum
17.00 Leikskólinn lokar
Lögð er mjög mikil áhersla á að taka vel á móti hverju barni svo það finni sig velkomið og mikilvægt í leikskólanum. Börnin þurfa að upplifa öryggi og það viðmót sem þau mæta getur haft úrslitaþýðingu varðandi góð samskipti og tengsl.
Námssvið og námsþættir fléttast inn í daglegt líf og leiki barnanna. Borðhald, hvíld, hreinlæti og að klæða sig úr og í eru mikilvægir þættir í námi barnanna. Börnin hjálpa sér sjálf eftir því sem þroski þeirra og geta leifa, það eykur sjálftæði þeirra og styrk. Líkamleg umönnum og heilsuvernd stuðlar að almennri vellíðan barnanna.



