Nám í leik
Nám í leik
- 17 February 2012
- Leikskólastjóri
- Hits: 233
Leikurinn í allri sinni fjölbreytni er kjarninn i uppeldisstarfi allra leikskóla. Leikskólkennarar þekkja leik barna, þeir virða leikinn, hljúa að honum, gefa honum rými og skipuleggja leikumhvefi barnanna. Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins, hann er kennsluaðferð leikskólakennarans og námsleið barnsins. Í bernsku er það að leika sér það sama og að læra og afla sér þekkingar. Hinn frjálsi og sjálfsprottni leikur barnsins er talinn "leikur leikjanna". Í frjálsum leik skapar barnið leikinn úr eigin hugarheimi, það tekur ákvarðanir á eigin forsendum og lærir að leita lausna. Í leiknum er barnið einbeitt og það er upptekið af augnablikinu.
Fjölþætt upplifun elur af sér þekkingu, nýjar tilfinningar, nýjar athafnir og leikni. Sköpunarþörf, virkni og hugmyndaflug barna birtist í leikjum þeirra. Í leik fá börnin hreyfiþörf sinni fullnægt og þau þjálfa hreyfingar sínar og líkamsstjórn. Í þykjustu- og hlutverkaleikjum og öðrum samleikjum lærist börnum nauðsyn þess að vinna saman og taka tillit hvert til annars á jafnréttisgrundvelli. Í leik ööðlast börnin samkennd og vináttu. Í skipulögðum leikjum og regluleikjum læra þau einfaldar samskiptareglur og að virða rétt annarra, í slíkum leikjum vaknar og þróast lýðræðisvitund þeirra. Lögð er áhersla á vináttu, samleik og jákvæð samskipti.



