Völusteinn vikan 23. – 27. apríl

Rosalega var þessi vika skemmtileg hjá okkur á Völusteini. Við vorum á fullu í smiðjunni að fingramála, gerðum meðal annars eitt samvinnu verkefni þar sem allir krakkarnir á Völusteini gerðu eitt stórt lístaverk. Það hangir í ganginum áður en þið komið á Völustein– endilega njótið þess ;-) Svo var mjög gott veður og við fórum út á hverjum degi og börnin voru svo glöð að vera ekki í þykkjum kuldagalla þau voru létt á sér og áttu auðveldara með að hreyfa sig. Í lok vikunnar, á föstudeginum, fengum við ljósmyndara í heimsókn, sem tók glæsilegar hóp- og einstaklings myndir. Hann var afskaplega skemmtilegur og fékk alla til að hlæja – jafnvel þau feimnu brostu ;-) myndir af myndatökunni er hægt að sjá á vefsíðunni.
Góða helgi, Edda Ýr, Slaðana, Ásta Lovísa, Dísa og Emma




