Sýna og sjá
- Category: Deildir
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 299
Sýna og sjá
Sýna og sjá er eitt af því skemmtilegasta sem börnin í Vinaminni gera. Sýna og sjá fer þannig fram að börnin skiptast á að koma með einhvern hlut að heiman sem þeim þykir vænt um og sýna öllum í Vinaminni. Þarna læra börnin að koma fram fyrir aðra óþvingað, sýna vinum sínum það sem er þeim hjartfólgið og svara spurningum hinna barnanna. Börnin fara heim með sérstaka poka sem þau setja hlutinn sinn í og geyma síðan í hólfinu sínu í skálanum þar til söngstund hefst en þá fá þau að sýna hlutinn sinn. Þau fara svo heim með hann aftur í pokanum. Það er alltaf tilhlökkunarefni hjá börnunum að fá að koma með eitthvað að heiman til að sýna í leikskólanum. Settur er upp listi þar sem foreldrar og börn geta séð hvenær röðin kemur að þeim að sýna og sjá. Öll börn leikskólans taka þátt í þessum leik.
Markmið:
- Að börnin læri að koma fram fyrir aðra og segja frá
- Að börnin læri að bera ábyrgð á þeim hlutum sem þau koma með í leikskólann
- Að börnin, áhorfendurnir, fái tækifæri til að spyrja um hluti sem þeim eru sýndir og svala þannig fróðleiksfýsn sinni
Leiðir að markmiðunum:
- Börnin skiptast á (eitt barn á Töfrasteini og eitt á Dvergasteini) að koma með einhvern hlut að heiman sem er þeim kær og sýna öllum á deildinni sinni þennan hlut
- Börnin segja frá hlutnum ef þau vilja og svara spurningum frá hinum börnunum



