Leikskólinn Vinaminni

Asparfelli 10, 111 Reykjavík, Sími 587-0977

Sunday, 05 20th

Last update11:51:44 AM

  • Stofna aðgang
    *
    *
    *
    *
    *
    *

    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Vikufréttir frá Töfrasteini 26.-30. mars

dailylife3

Vikan 2-4 apríl.

Vikan hefur verið ótrúlega róleg hjá okkur þrátt fyrir páskaannríki. Börnin tóku páksaskrautið sitt með heim á mánudaginn og var fataklefinn mjög páskalegur þegar allt skrautið var komið í hólfin :) Niðurtalning í páskana er mjög spennandi þessa dagana og geta börnin ekki beðið eftir því að talningunni lýkur. Útiveran er æðisleg þegar spenningurinn er mikill og höfum við á Töfrasteini nýtt okkur hana óspart til að eyða umfram orku sem safnast upp þegar páskagírinn fer að nálgast að ógleymdum páskaeggjunum sjálfum sem allir eru farni að bíða eftir og finna eflaust lyktina af langar leiðir :)

Við kveðjum héðan af Töfrasteini og óskum ykkur öllum  Gleiðlegrar og hamingjuríkrar páskagleði :)

Páskakveðjur María Ösp, Sirrý, Brynhildur, Harpa og Laufey skóalstelpa :)

 

Vikan 26. -30. mars
Vikan hefur verið skemmtileg og börnin hress að vanda. Við höfum verið í páskahugleiðingum og sungið páksalög, talið niður dagana í páskana og föndrað inn á milli.

Eggjaleitin toppaði vikuna hjá okkur og byrjuðu börnin á Töfrasteini að aðstoða börnin á yngri deildunum að finna eggin sín, systkini hljálpuðust að og tóku leitinni létt :) Á meðan voru eggin falin á Töfrasteini og voru falin 146 egg sem er nú ekkert litið þegar maður er 3ja, 4ra, 5 eða 6 ára. Þegar allir voru komnir með helling í pokann sinn voru eggin talin og það vantaði 4 egg uppá svo það var leitað enn betur og að lokum fundust eggin 4 sem voru eftir. Börnin voru 12 mínútur að finna eggin og voru þau ekkert smá stolt af sér. Allir fengu svo að velja sér egg úr pokanum og að lokukm verðlauna-egg í staðinn fyrir pokann sinn.

Góða helgi

María Ösp, Sirrý, Brynhildur og Harpa. 

Vikan 19 til 23 mars 2012

Þessa viku höfum við á Töfrasteini haft nóg að snúast. Við höfum verið dugleg að vera úti í misgóðu veðri en alltaf fundið okkur eitthvað að gera úti. Við fórum í vettvangsferð á miðvikudaginn og týndum greinar fyrir páskana. Páskaföndrið heldur áfram hvort sem það er að mála í gluggana eða líma og klippa og móta unga á ýmsa vegu J það er því nóg að gera hjá okkur.

Perluæðið fræga hefur gripið börnin á Töfrasteini eina ferðina enn og því er setið tímunum saman og perlað og það er sko toppurinn að fá perlið sitt straujað. Það er verið að perla sér síma og svo er spjallað á milli borða og í kubbaleiknum ef það vantar kubb á hinn enda borðsins. Ferlega gaman J

Hópastarfið gengur sinn vanagang og eru allir hóparnir uppteknir þessa dagana af því að spila. Við erum að spila lottó, ludo og svo samstæðuspil, það er ekkert hópastarf nema spilað sé í lokin J

Góða helgi og vonum nú að sólarspárnar rætist svo allir komi brúnir í leikskólann á mánudaginn !!

Helgarkveðjur: María Ösp, Harpa Rós, Brynhildur Ósk og Sirrý.

Um okkur

Robot

Leikskólinn Vinaminni
Asparfelli 10
Sími 587-0977
Netfang: vinaminni (hja) vinaminni.is