Leikskólinn Vinaminni

Asparfelli 10, 111 Reykjavík, Sími 587-0977

Sunday, 05 20th

Last update11:51:44 AM

  • Stofna aðgang
    *
    *
    *
    *
    *
    *

    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Töfrasteinn 7.-11.maí

Category: Daglegt líf Töfrasteinn Published Date María
Hits: 15

dailylife3 litil

Vikan hefur verið ótrúlega fjót að líða enda nóg að bardúsa hjá okkur á Töfrasteini, við fórum útfyrir garðinn að leika í klifrugrindinn og rólunum við hliðina sem börnunum finnst svakalega skemmtilegt. Vikan hefur einkennst af þrifum og merkingu mynda fyrir opna húsið á laugardaginn svo börnin hafa fengið nokkuð fljálsar hendur með verkefnaval sem er allaf sport :) Hópastarfið hefur því verið í fríi þessa viku sökum undirbúnings en við bætum úr því í næstu viku.

En við Hlökkum til að sjá ykkur og vini og vandamenn á opna húsinu á laugardaginn 12. maí.

Þökkum fyrir vikuna og óskum ykkur góðrar helgar :) María Ösp, Harpa, Sirrý og Brynhildur.

Töfrasteinn 30.apríl-4.maí

Category: Daglegt líf Töfrasteinn Published Date María
Hits: 11

dailylife3 litil

Vikan hefur verið fljót að líiða enda var frí á þriðjudaginn og margir sem héltu að það væri kominn mánudagur á miðvikudeginum :) Við á Töfrasteini höfum verið að leggja lokahönd á verkin okkar í hópastarfinu. Börnin hafa unað sér vel í leiknum. En hápunktur vikunnar auðvitað var SVEITAFERÐIN hún var sko æðisleg enda veðrið alveg hreynt út sagt frábært :)

Við óskum ykkur góðrar helgar og þökkum fyrir ánægjulega samveru í sveitaferðinni. María Ösp, Brynhildur, Sirrý og Harpa.

Töfrasteinn vikan 23. -27. apríl

Category: Daglegt líf Töfrasteinn Published Date María
Hits: 36

 

dailylife3 litil  Vikan hefur verið viðburðarík hjá okkur á Töfrateini. Hópastarfið hefur verið hápunkturinn og allir fengið að fara 3svar í vikunni svo lokaverkefnin klárist fyrir opna húsið :) Ekkert smá spennandi og þau fá sko ekki leið á því að koma í hópastarfið. Útiveran hefur verið okkur hliðholl þrátt fyrir kulda í vikunni og hafa börnin unað sér vel á hjólum og í sandinum að moka. Í dag (föstudag) kom ljósmyndari og tók myndir af okkur öllum. Börnunum fannst þetta mikið hátíðarefni enda margir í betri fötunum. Það upphófst mikil stemning í hópnum og flest allir voru kátir á myndunum sínum.

Við þökkum fyrir frábæra viku og óskum ykkur góðrar helgar gott fólk. María Ösp, Brynhildur, Harpa og Sirrý.

Um okkur

Robot

Leikskólinn Vinaminni
Asparfelli 10
Sími 587-0977
Netfang: vinaminni (hja) vinaminni.is