Veðurfræðingur
- Category: Deildir
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 360
Veðurfræðingur
Í alstundinni f.h. á Töfrasteini og Gimsteini er eitt barn í einu veðurfræðingur. Það lítur til veðurs og athugar hvernig veðurhorfurnar eru þann daginn. Síðan finnur barnið myndir sem einkenna veður dagsins og myndir af fötum sem æskilegt er að fara í fyrir þá sem ætla út. Myndirnar festir barnið á tilheyrandi spjald sem er sett fram í skálann. Þá geta börnin litið á spjaldið þegar þau klæða sig til að fara út og þurfa ekki alltaf að spyrja: „Í hvað á að fara?“
Þetta vekur börnin til umhugsunar um það hvernig veðurfar er á Íslandi og þau læra auk þess að klæða sig eftir veðri



