Leikskólinn Vinaminni

Asparfelli 10, 111 Reykjavík, Sími 587-0977

Sunday, 05 20th

Last update11:51:44 AM

  • Stofna aðgang
    *
    *
    *
    *
    *
    *

    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Hópastarf

Hópastarf

Börnunum á Töfrasteini er skipt í hópa eftir aldri og hver hópur fer í hópastarf einu sinni í viku þar sem unnið er markvisst að því þema sem hver barnahópur ákveður að vinna að hverju sinni. Einnig er lögð áhersla á einbeitingarverkefni svo sem að klippa, rífa, líma, spila, leika með einingakubba o.fl. Í hópastarfinu fá börnin tækifæri til að vinna í fámennum hópi jafnaldra.

Markmið með hópastarfinu:

- Að efla málþroska, hvetja börnin til að segja frá
- Að þjálfa börnin í að vera saman í hóp
- Að læra að taka tillit hvert til annars og hlusta hvert á annað
- Að efla vináttu hvers til annars
- Að efla sjálfsbjargarviðleitni þannig að börnin geti bjargað sér
- Að börnin læri að samnýta áhöld og rétti hvert öðru

Þema er viðfangsefni sem tekið er fyrir í ákveðinn tíma.
Í leikskólanum er unnið með ákveðið efni eða þema. Þemað er valið fyrir leikskólaárið og er það hluti af ársáætlun. Unnið er með þetta efni/þema á margbreytilegan hátt og börnin læra að nota öll skilningarvit og margvíslegar vinnuaðferðir við að nálgast viðfangsefnið. Mismunandi er hversu þemaáætlun er fyriirfram skipulögð og oftast þróast verkefnin eftir áhuga barnanna og ýmsu því sem kemur upp.

Um okkur

Robot

Leikskólinn Vinaminni
Asparfelli 10
Sími 587-0977
Netfang: vinaminni (hja) vinaminni.is