Leikskólinn Vinaminni

Asparfelli 10, 111 Reykjavík, Sími 587-0977

Sunday, 05 20th

Last update11:51:44 AM

  • Stofna aðgang
    *
    *
    *
    *
    *
    *

    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Gimsteinn

dailylife3 litil

Vikan 26-30 mars.

Í þessari viku er búið að bralla ýmislegt en undirbúningur fyrir páskana er búinn að vera í fyrsta sæti.
Nú eru næstum allir búnir að gera allt páskaskraut og verður það sent heim í næstu viku.

Síðustu daga (og vikur og mánuði!!) er búið að vera mikið pússlæði á deildinni – og virðist það ekkert vera að minnka, enda eru þau öll orðin ótrúlega fær í að pússla stór pússl. Krakkarnir eru líka búnir að vera mjög duglegir að æfa sig ap klippa og fer þeim mjög hratt fram.

Í dag (30. mars) var svo páskaeggjaleit, en öll börnin á leikskólanum hafa undanfarið hjálpast að við að búa til páskaegg úr pappamassa. Eggin voru svo falin út um allan leikskóla og síðan var leitað að þeim og það var sko stuð!! J

Takk fyrir vikuna og góða helgi!! Didda, Elva, Jolanta og Díana

Vikan 19. - 23. mars 2012

Á Gimsteini er alltaf nóg að gera og skemmtilegt að vera.
Núna erum við í óða önn að undirbúa páskana, krakkarnir fóru á dögunum í vettvangsferð um nágrennið og klipptu í leiðinni greinar af trjám sem verða svo skreyttar með páskaskrauti barnanna, sem þau eru á fullu að vinna í.
Páskaundirbúningurinn var svo toppaður í dag, 23. mars, en þá fékk leikskólinn í fóstur þrjá litla og sæta páskaunga sem munu vera hjá okkur fram að páskum. Það var rosaleg spenna og gleði hjá krökkunum að vera komin með þessa nýju gesti!!

Á þriðjudaginn fengum við nýjan starfsmann inn á deildina, hana Díönu. Díana starfar á Gimsteini frá kl. 8.30-12.30 en eftir hádegi er hún í afleysingarstöðu á leikskólanum. Elva vinnur nú frá kl. 12-17.

Og síðast ek ekki síst.... mottumars var haldinn hátíðlegur!

Góða helgi!!
Didda, Jolanta, Elva og Díana


Um okkur

Robot

Leikskólinn Vinaminni
Asparfelli 10
Sími 587-0977
Netfang: vinaminni (hja) vinaminni.is