Leikskólinn Vinaminni

Asparfelli 10, 111 Reykjavík, Sími 587-0977

Sunday, 05 20th

Last update11:51:44 AM

  • Stofna aðgang
    *
    *
    *
    *
    *
    *

    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Umönnun og daglegar venjur

Mikil áhersla er lögð á mikilvægi daglegra venja í Vinaminni. Þetta á ekki síst við um yngstu börnin Þau þurfa að vera í enn nánari tengslum við þá sem vinna með þeim, heldu en eldri börnin. Þau þurfa meiri líkamlega umönnun, meiri nálægð við hina fullorðnu. Þau eru að læra á veröldina í kringum sig, læra að matast, nota salerni, þvo sér o.s.frv.

Hlýja og umönnun er forsenda þess að barnið nái að þroskast eðlilega. Til þess að vel megi takast þurfa náin tilfinningatengsl að skapast milli barns og fullorðins og smskiptin við börnin að vera þannig að hver og einn hafi rétt til að láta sína skoðun í ljós. Barnið setur allt sitt traust á hinn fullorna.

En hvað er umönnun? Mörgum dettur eflaust í hug að það sé að skipta á börnunum og snýta þeim, gefa þeim að borða þ.e. að sinna líkamlegum frumþörfum þeirra. Hugtakið umönnun nær yfir hegðun gagnvart öðrum manneskjum annars vegar og hegðun í samskiptum við annað fólk hinsvegar. Að bera umhyggju fyrir eða vera umhugað um aðra menneskju, felur í sér tilfinningaleg samskipti.

Með umönnun er átt við að annast börnin líkamlega og andlega af hlýju, áhuga og ábyrgð, þannig að börnin séu ánægð og að við sjáum það í augum þeirra að þau leiftri af lífsgleði. Því nær maður ekki ef unnið er með vélrænum vinnubrögðum, eins og t.d. að taka barnið og setja það í vagninn, án orða, án þess að brosa til þess, án þess að sýna að þér þyki vænt um það. Erum við með athyglina við barnið ef við erum að skipta á barninu en jafnframt að spjalla við einhvern annan starfsmann um eitthvað allt annað?

Það að klæða sig úr og í er einn þáttur í að ýta börnunum áfram til sjálfstæðis og sjálfsákvörðunar auk þess sem þessi tími getur gefið góð tækifæri til samspils/samskipta milli barns og fullorðins og barnanna á milli.

Oft eru ung börn að klæða sig úr og í skóm og sokkum. Hinir fullorðnu þurfa að sýna þessum athöfnum þeirra jákvæð viðbrögð þarna eru börnin að æfa sig sem er nauðsynleg æfing í ferli lífsins

Um okkur

Robot

Leikskólinn Vinaminni
Asparfelli 10
Sími 587-0977
Netfang: vinaminni (hja) vinaminni.is