Einingakubbar
- Category: Deildir
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 724
Einingakubbar
Einingakubbarnir eru skemmtilegur og þroskandi efniviður fyrir börn á öllum aldri. Einingakubbarnir eru skapandi efniviður og veita börnunum tækifæri til að læra t.d. stærðfræðihugtök eins og stærri, minni, stærsti, helmingi stærri, helmingi minni o.s.frv. Þau læra að flokka, þau læra ummál og þyngd, fegurðarskyn þeirra eflist svo og félagsfærni og rúmskyn. Yngstu börnin handfjatla kubbana og kanna þá, þau bera kubbana fram og til baka en nota þá ekki til bygginga. Fyrstu byggingarnar eru þannig að börnin mynda að mestu leyti raðir, ýmist láréttar (á gólfinu) eða lóðréttar (hlaða). Mikið er um endurtekningar í þessum fyrstu byggingarmynstrum. Síðan fara að koma brúarbygginar þ.e. tveir kubbar með bili á milli tengdir saman með þriðja kubbnum. Þá eru girðingar líka fljótlega sjáanlegar í byggingarleikjum með einingakubbana. Þegar börnin hafa náð færni í að byggja með kubbum fara skrautleg mynstur að koma fram. Alls konar samhverfur má sjá og mikla formfegurð. Þessu næst fara börnin að gefa byggingum sínum nafn og þegar enn lengra er komið eru byggingar barnanna oft eftirmyndir eða tákn fyrir raunverulegar byggingar sem þau þekkja. Þá kemur fram rík þörf fyrir að leika þykjustu- og hlutverkaleiki í tengslum við kubbabyggingar. Í Vinaminni eru einingakubbarnir geysi vinsælir hjá börnunum og eru mikið notaðir í hópastarfi og einnig á valtímanum



