Leikskólinn Vinaminni

Asparfelli 10, 111 Reykjavík, Sími 587-0977

Sunday, 05 20th

Last update11:51:44 AM

  • Stofna aðgang
    *
    *
    *
    *
    *
    *

    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Dvergasteinn 29. apríl - 4. maí

Category: Daglegt líf Dvergasteinn Published Date Pernille
Hits: 27

 

Dvergasteinn 30.krakkarsippa2 apríl – 4. maí.

Í þessari og seinustu viku höfum við verið dugleg að fara út í góða veðrið. Börnunum finnst það mjög gaman ( og starfsfólkið líka) eftir alla inniveruna í vetur.

Nýtt skipulag er að byrja á deildinni, þar sem börnunum er skipt í fjóra hópa og er hver hópur með fastan hópstjóra. Í Hópavinnunni er unnið markvisst með samvinnu, samskipti, tjáningu, listsköpun og fínhreyfingar. Hópavinnan er milli kl: 9:30 og 10:30 mánud., þriðjud., fimmtud. og föstud., og er skipulögð hreyfistund annað hvort inni á deild eða úti, alla miðvikudaga þar sem börnin fari í þrautabraut, boltaleik, vettvangsferð eða annað.

Tímasetningunni á siðdegihressingunni hefur verið breytt þannig að nú drekka börnin kl. 15:30 - 16:00í staðin fyrir kl. 15:00 - 15:30.

Tómataplöntur eru farnar að gægjast upp úr moldinni í pottunum okkar og er bara gaman að því að fá vorið og gróðurinn inn á deild líka.

Kv. Pernille, Linda, Guðný og Snædís

Dvergasteinn 16. - 20. apríl

Category: Daglegt líf Dvergasteinn Published Date Pernille
Hits: 36

biking4

Dvergasteinn 16. – 18. apríl.

Nú lítur út fyrir að vorið sé komið í Breiðholtinu. Þessa viku höfum við verið dugleg að fara út að leika í sólinni. Börnin eru alltaf voða spennt að komast út og eru á fullu að kanna garðinn sem er að vissu leiti nýtt leiksvæði. Þau eru á fullu út um allt og fara stundum aðeins hraðar yfir en litlu fæturnar ráða við og detta þá. Þannig að nú má alveg búast við að marblettir og rispur fari að gera vart við sig hér og þar á höndum og andlit barnanna.

En er engin tómatafræ farið að spíra í jógúrtdósunum okkar, en vonandi fer nú bráðum eitthvað að gerast.

Minnum á skipulagsdaginn á föstudaginn en þá er leikskólinn lokaður.

Að lokum viljum við óska ykkur öllum gleðilegt sumar um leið og við þökkum fyrir veturinn.

Kv. Pernille, Linda, Guðný og Snædís.

Dvergasteinn 10. - 13. apríl

Category: Daglegt líf Dvergasteinn Published Date Pernille
Hits: 36

dailylife2 litil 

Dvergasteinn 10. – 13. apríl.

Gott var að sjá alla aftur eftir páskafríið og greinilegt að páskamaturinn og eggin hafi farið vel í börnin því þau virðist öll hafa stækkað um páskana.

Vorhugur er komin í fólkið og ákváðum við að nú væri réttur tími til að byrja á vorverkjunum. Við hentumst því í að sá tómatafræ sem vonandi fara svo að spíra og verða að plöntum einhvern tíma með vorinu.

Þar að auki höfum við verið dugleg í smiðjunni, farið aðeins út að leika, kubbað, púslað, leirað og lesia.

Við viljum biðja foreldra að fylgjast vel með þegar bleyjumiða birtast á hólfum barnanna. Við höfum engar aukableyjur til að lána börnunum og þurfum því að lána frá öðrum börnum sem við viljum síður gera.

Hafið góða helgi og njótið íslensku vorbliðunnar

Kv. Pernille, Linda, Guðný og Snædís

Um okkur

Robot

Leikskólinn Vinaminni
Asparfelli 10
Sími 587-0977
Netfang: vinaminni (hja) vinaminni.is