Leikskólinn Vinaminni

Asparfelli 10, 111 Reykjavík, Sími 587-0977

Sunday, 05 20th

Last update11:51:44 AM

  • Stofna aðgang
    *
    *
    *
    *
    *
    *

    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Leikur ungra barna

Í leikskólanum Vinaminni viljum við stuðla að því að börnin njóti sem best bernsku sinnar og fái að láta leikgleði og ímyndurnaraflið njóta sín í daglega starfinu. Leikurinn í allri sinni fjölbreytni er kjarni í starfi leikskólabarna. Leikurinn er líf barnsins og í gegnum leikinn tjá börnin reynslu sína og upplifanir.Hinn frjálsi leikur barnsins er mikilvægasta tjáningarformið. Leikurinn er ekki aðeins gleðigjafi, hann er barninu nám og starf, leikurinn er náms- og þroskaleið, leið til þekkingar, sjálfstjánngar og sjálfsnáms.

Mikilvægt er í leikskólastarfi að börnin fái að njóta sín í leiknum, að þau fái að stjórna ferðinni og skapa leikinn, ímyndurnaraflið er þar mikilvægur þáttur, að börnin fái að lála ímyndurnaraflið fara á flug og spinna áfram. Þá reynir á hæfni starfsmannanna að taka ekki völdin og ætla að stjórna leiknum, heldur vera þátttakandi í hinum frjóa ímyndurnarleik barnsins og viðurkenna hann.

Það hefur sýnt sig að þátttaka hins fullorðna í leik barna er mikilvæg svo fremi sem hann ber sig rétt að og auðgi leikinn. Börnin endast lengur  í leiknum ef hinn fullorðni tekur þátt með þeim. Rannsóknir hafa sýnt að það eru hinir fullorðnu sem hafa áhrif á virkni yngstu barnanna í leiknum. Mikilvægasti efniviðurinn er því starfsfólk, sem hefur áhug og vilja til að starfa með börnunum. Börnin þarfnast þess að hafa önnur börn nálægt sér og vilja leika nálægt hvert öðru en þau leita mest eftir samskiptum við fullorðna.

Oft hefur verið rætt um það að ung börn geti ekki gert þetta og hitt vegna ungs aldurs. Verðum á varðbergi gagnvart þessum ummælum þau hafa letjandi áhrif á starfsmenn sem fara að hugsa "já þau geta þetta ekki þau eru svo lítil" höfum hugfast þegar við erum að vinna með litlum börnum.

"ÉG GET ÞAÐ SEM ÉG FÆ TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA"

Um okkur

Robot

Leikskólinn Vinaminni
Asparfelli 10
Sími 587-0977
Netfang: vinaminni (hja) vinaminni.is