Könnunarleikur
- Category: Deildir
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 513
Könnunarleikur eða Heuristic Play with Objects er að riðja sér til rúms hér á landi og ákvað starfsfólk Vinaminnis að fara af stað með þennan leik með yngstu börnunum í leikskólanum. Eins og öllum er ljóst er leikur barna mjög merkilegur og þroskandi og er leið barna til að læra. Ef börn fá viðfangsefni, sem þau hafa áhuga á, starfa þau af eigin hvötum án þess að hinn fullorðni stýrir þeim. Þau handfjatla hlutina, skoða þá, setja þá upp í sig og reyna á allan hátt. Hlutirnir sem börnin fá í könnunarleik eru ekki venjuleg plastleikföng úr búð. Þetta eru alls konar hversdagslegir hlutir og ílát s.s stórar dósir og ílát, pappahólkar margskonar, lyklar, ullardúskar, rennilásar, sleifar, könglar, skeljar og margt margt fleira. Í gegnum tíðina hafa börn leikið sér með verðlaust efni en hér er á ferðinni sérstök útfærsla á því að nálgast efniviðinn með ákveðinn tilgang í huga. Þátttakendur í könnunarleik eru tíu mánaða til tveggja og hálfs árs gömul börn.
Markmið:
- Að börnin fái tækifæri til að þjálfa skynfæri sín með því að setja upp í sig og handleika hluti sem þau hafa áhuga á og velja sjálf gaumgæfilega
- Að börnin fái tækifæri til að kanna hluti á margvíslegan hátt eins og t.d. að setja hluti ofan í annan hlut og hvolfa þeim svo úr aftur
- Að börnin geti fengið útrás fyrir meðfædda forvitni og notað hæfileikann til að einbeita sér
- Að gefa börnunum tækifæri til að starfa af eigin hvötum, sjálf og fyrir sig sjálf, án þess að fullorðnir stýri þeim
Leiðir að markmiðunum:
- Útbúa körfur með eins könnunarviðfangsefnum sem börnin fá hvert og eitt
- Börnin skoða, handleika, setja upp í sig og reyna á ýmsan hátt
- Börnin kynnast ólíkum hlutum og efnivið
- Leikur af eigin hvötum
Könnunarleikurinn er mjög skemmtilegur leikur og börnin í Vinaminni eru dugleg að kanna hlutina sem eru í körfunum og reyna þá á allan hátt . Þau skoða og handfjatla hlutina setja þá ofaní hvern annan, setja þá upp á hvern annan eða til hliðar, síðan þurfa þau að skoða í körfurnar hjá hinum börnunum og athuga hvað er að sjá þar. Börnin skiptast á hlutum úr körfunum og uppgötva að það er eins í þeirra eigin körfu



