Vikupistill frá Álfasteini 19. til 23. mars
- Category: Daglegt líf Álfasteinn
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 241

Vikan 19. til 23. mars 2012
Heil og sæl öll.
Það er alltaf jafn gaman og mikið að gera hjá krökkunum á Álfasteini. Þessi vika sem er að líða hefur því miður verið nokkuð fámenn vegna veikinda barnana. Vonandi fara þessi veikindi að hörfa með hækkandi sól.
Undirbúningurinn fyrir páskan er komin á fullt skrið og förum við mikið í smiðjuna þessa dagana þar sem við erum að mála og líma ýmislegt fallegt til að skreyta með um páskana.
Við höfum líka verið dugleg að fara út eða þau sem geta, sumir þurfa enþá að vera inni eftir veikindi.
Þessa viku höfum við lagt mikla áherslu á einbeitingarverkefni eins og að pússla, pinna og lita og sjáum við miklar framfarir hjá börnunum dag frá degi.
Bestu kveðjur Gurrý, Elín, Guðrún og Sandra.



