Aðlögun barna í leikskólanum Vinaminni
- Category: Deildir
- Published Date
- Leikskólastjóri
- Hits: 221
Aðlögun barna í leikskólanum Vinaminni.
Foreldrar eru boðaðir á fund í leikskólann áður en barnið byrjar í leikskólanum þar sem leikskólastjóri kynnir leikskólann og starfsemi hans fyir foreldrum. Kynnt eru markmið og leiðir leikskóastarfsins, leikskvæði og starfsfólk. Foreldrar fá þá einnig upplýsingar um foreldrafélagið og starfsemi þess og þeir veita þær upplýsingar um barnið sem nauðsynlegt er að starfsfólk leikskólans viti um.
Aðlögun barna fer þannig fram að leikskólakennarinn tekur á móti barninu og er með það í aðlögun þann tíma sem þarf til að barnið nái öryggi í leikskólanum. Fyrsti dagurinn er heimsókn þar sem barnið kemur með foreldri/foreldrum og dvelur aðeins í eina klukkustund. Síðan fer það eftir einstaklingnum hversu langan tíma aðlögunin tekur og hve lengi foreldrar þurfa að vera með barninu. Lögð er áhersla á að aðlögunin fari rólega fram og barnið sé aldrei svo lengi í leikskólanum í einu að það verði órólegt og þreytt. Mikilvægt er að barnið fari ánægt heim á hverjum degi og hlakki til að koma í leikskólann næsta dag.
Aðlögun milli deilda
Þegar barn flytur af yngri deild á eldri deild á Vinaminni
Bæði foreldrar og barnið sjálft eru búin að fá upplýsingar um aðlögunina frá leikskólakennurum bæði á yngri og eldri deild áður en aðlögun á eldri deild hefst
Einn starfsmaður af eldri deild er barninu innan handar og sér um aðlögunina.
Dagur 1.
Barnið fær að vera smá stund í heimsókn á eldri deild strax og það hefur lokið við morgunverð. Barnið fer í ávaxtastund á yngri deildi.
Dagur 2.
Barninu er boðið að vera á eldri deild eftir morgunverð og tekur þátt í ávaxtastund á eldri deild.
Dagur 3.
Barninu er boðið að vera á eldri deild eftir morgunverð og tekur þátt í ávaxtastund á eldri deild.
Barnið fylgist með vali á eldri deild og tekur þátt ef vill. Barninu er fylgti yfir á yngri deild þegar það vill eða í síðasta lagi kl: 11:30.
Dagur 4.
Barninu er boðið að vera á eldri deild eftir morgunverð og tekur þátt í ávaxtastund á eldri deild.
Barnið fylgist með vali á eldri deild og tekur þátt ef vill. Barninu er fylgti yfir á yngri deild þegar það vill en tekur annars þátt í starfinu á eldri deild fram að hádeigisverði.
Barninu er boðið að koma eftir hvíld á eldri deild og dvelja þar við leik og störf.
Dagur 5.

Aðlögun er nú lokið en barnið er velkomið í heimsókn á yngri deildina þegar það óskar eftir því og ef erfiðleikar eru hjá barninu að skilja við yngri deildina er tekinn lengri tími í aðlögunina.