Kæru foreldrar
Vetur konungur gengur yfir með miklum umhleypingum um þessar mundir. Börnin fara samt sem áður út að leika eftir því sem aðstæður leyfa. Eru börnin á Gimsteini og Töfrasteini duglegust á þeim vettvangi enda elst í hópnum. Börnin á Völusteini, Dvergasteini og Álfasteini hafa komist minna út enda styttri fætur sem ráða ekki eins vel við hálku, stóra rigningarpolla og mikinn snjó. Vonandi fer veðrið að lagast svo allir geti fengið ferskt loft í lungun og fullnægt hreyfiþörfinni .
Innandyra er alltaf nóg að starfa.
Á Töfrasteini og Gimsteini fara börnin í , vísdómsstundir ( á Töfrast.),hópastarf, smiðju, búleiki og hin ýmsu einbeitingarviðfangsefni, byggingaleiki og svona mætti lengi telja. Það er gaman að segja frá því hvað börnin eru upptekin við að teikna og lita um þessar mundir og mjög miklar framfarir hjá þeim í þeim efnum.
Börnin á Völusteini, Dvergasteini og Álfasteini takast á við ýmiss viðfangsefni þó á annan hátt en eldri börnin. Þau leika mikið í könnunarleik, byggingarleikjum ýmiskonar, dúkkur, bangsar, bílar o.fl. svo og einbeitingarviðfangsefni (teikna, pússla, pinna, perla með stórum perlum og leira) og þau fara í smiðju og vinna í myndlist. Framfarirnar eru einnig miklar hjá þessum börnum t.d. í máli og málskilningi og í leiknum sjálfum.